Ráðgjöf á sviði almannavarna- og einkavarnamála

    Sólveig Þorvaldsdóttir hætti störfum sem framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins vorið 2003. Í framhaldi af því stofnaði hún fyrirtækið Rainrace sem veitir ráðgjöf á sviði almannavarna-og einkavarnamála hér heima og erlendis. Auk þess að sinna verkefnum sjálf hefur hún umsjón með samstarfi átta ráðgjafa. Hver þeirra býr yfir sérþekkingu en þeir eiga það sameiginlegt að vinna að verkefnum sem tengjast slysum og áföllum, stórum sem smáum. Hópurinn vinnur undir samstarfsheitinu: Rainrace Network.

    Stór markhópur

    Verkefni Rainrace eru ráðgjöf, rannsóknir og kennsla varðandi hvers konar neyðar- og björgunarmál. Markhópurinn er stór: fyrirtæki og heimili, almannavarnir, stjórnvöld, ríkisstofnanir. alþjóðastofnanir og björgunaraðilar; í raun allir sem þurfa að undirbúa sig að bregðast við neyðarástandi. Sólveig segist með þessu móti nýta þekkingu sína og reynslu á sviði verkfræði, áhættugreiningar, almannavarna, björgunarstarfa og alþjóðlegrar neyðarþjónustu. „Fyrstu verkefni Rainrace hafa verið fyrir Sameinuðu þjóðirnar, rannsóknarverkefni fyrir ESB, þjálfun á alþjóðarústabjörgunarsveitum, auk annarra smærri verkefna fyrir ríkisstofnanir hér á landi. Ég kenni líka rústabjörgun fyrir Hjálparsveit skáta í Kópavogi, en fæ engin laun fyrir það. – Svona er sjálfboðaliðagenið sterkt í manni!”

    Neyðarstjórnun fyrirtækja

    Rainrace veitir fyrirtækjum ráðgjöf varðandi það hvernig bregðast skal við áföllum, þ.e. neyðarstjórnun. Sólveig segir slíkt ástand geta skapast af ýmsum ástæðum, til dæmis vegna náttúruhamfara. Áhrifin á fyrirtækið geta verið bein eða óbein, til dæmis á starfsfólk, skrifstofur, flutningsleiðir, viðskiptaaðila og byrgja. „Neyðarstjórnun nær einnig til ástands sem skapast þegar stórslys henda fyrirtæki, stórbruni, óeirðir verða, hryðjuverk eða annað sem truflar verulega starfsemi fyrirtækisins. Ekki þarf alltaf stóra atburði til þess að valda truflun hjá fyrirtækjum. Ráðgjöfin felst í að fara yfir með starfsliðinu hvað gæti gerst og hvernig væri réttast að bregðast við. Til dæmis hefur verið mikið verið unnið í hafnarvernd hér á landi, hvernig fyrirbyggja megi sprengjuárás í höfnum. Segja má að Rainrace vinni með fyrirtækjum að svara spurningunni: Hvað ef sprengjan springur? Viðbrögð við áfalli eru alltaf byggð á sama grunni, hvort sem það eru almannavarnir að störfum, fyrirtæki að bregðast við áföllum eða heimili. Viðbrögðin byggja á mjög einföldum lykilatriðum, enda verða þau að vera einföld til að koma að gagni þegar mikið liggur við,” segir Sólveig.

    Sólveig segir nokkrar ástæður vera fyrir því að fyrirtæki eigi að gera ráðstafanir til að bregðast við áföllum. Þar séu í húfi augljósir hagsmunir, eins og eigenda og starfsfólks, en þetta varði líka samfélagið í heild. „Ef þjóðfélagið verður fyrir áfalli, tökum sem dæmi öflugt Kötlugos, þá er ekki nóg að almannavarnir hafi undirbúið sig. Áhrifin á samfélagið koma til með að vera með ýmsum hætti og við getum öll haft áhrif á afleiðingarnar.”

    Allar athugasemdir, bæði um það sem nýtist og það sem mætti lagfæra, eru vel þegnar og sendist á . Ef óskað er eftir aðstoð við að útbúa eigin leiðbeiningar, þá endilega hafa samband í sama netfang.